Töluverðar breytingar verða á bæjarstjórum í 22 stærstu sveitarfélögum landsins eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16.maí.Það eru 22 sveitarfélög á Íslandi með yfir 2000 íbúa. Stærst er Reykjavík en minnst er Rangárþing Eystra.Útlit er fyrir að ellefu nýir bæjarstjórar taki við taumunum í þessum 22 sveitarfélögum þegar skýr mynd er að verða komin á meirihluta víðsvegar.Sífellt fleiri sveitarfélög velja sér bæjarstjóra úr röðum kjörinna fulltrúa eftir kosningarnar 16. maí. Sjálfstæðisflokkurinn er þar sérstaklega áberandi og skipar bæjarstjórastólinn á mörgum stöðum. PÓLITÍSKUR EÐA ÓPÓLITÍSKUR? Sveitarfélög hafa ýmist verið með ráðna, ópólitíska bæjarstjóra eða bæjarstjóra úr röðum kjörinna fulltrúa. Nú er ljóst að sex sveitarfélög eru að færa sig frá þeim ópólitísku yfir í kjörna fulltrú