Paris Saint-Germain vann Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Arsenal. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og ekkert mark kom í framlengingu.Eberechi Eze og Gabriel reyndust skúrkarnir í vítaspyrnukeppni en þeir hittu hvorugur á markið.PSG er aðeins annað liðið í sögunni til að verja titilinn en liðið vann gegn Inter fyrir ári. Aðeins Real Madrid hefur náð því en spænska liðið vann þrisvar í röð 2016-18 og fimm sinnum í röð 1956-60./m SVONA VAR VÍTASPYRNUKEPPNIN * Goncalo Ramos skoraði fyrir PSG * Gyökeres skoraði fyrir Arsenal * Doue skoraði fyrir PSG * Eze klúðraði fyrir Arsenal * Nuno Mendes klúðraði fyrir PSG. Raya varði * Rice skoraði fyrir Arsenal * Hakimi skoraði fyrir PSG * Martinelli skoraði fyrir Arsenal * Beraldo skoraði fyrir PSG