Stuðlar starfa á bráðabirgðaleyfi vegna ófullnægjandi brunavarna

Ríkiseignum var tilkynnt um það í byrjun mánaðar að starfsemi í húsnæði Stuðla væri bönnuð - þar sem ekki fékkst útgefið öryggisvottorð frá byggingarfulltrúa. Þetta kemur fram í svörum frá Reykjavíkurborg.Barna- og fjölskyldustofa fékk bráðabirgðaleyfi fyrir starfseminni degi síðar með aukinni mönnun. Rannsókn HMS sýndi að Ríkiseignir vanræktu brunavarnir á Stuðlum verulega í aðdraganda eldsvoðans 2024. ÓSKAÐ EFTIR ÖRYGGISÚTTEKT EINU OG HÁLFU ÁRI EFTIR ELDSVOÐANN Þann 17. mars síðastliðinn óskuðu Ríkiseignir, sem eigandi húsnæðis Stuðla, eftir öryggisúttekt á húsnæðinu. Neyðarvistunin, sem brann 2024 með þeim afleiðingum að 17 ára piltur lést, hefur ekki verið tekin í notkun nema einungis lítill hluti sem varð ekki fyrir verulegum skemmdum.Daginn eftir að Ríkiseignir óskuðu eftir úttekt
Stuðlar starfa á bráðabirgðaleyfi vegna ófullnægjandi brunavarna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd