Landssamtökin Þroskahjálp óttast að of mikil áhersla sé lögð á uppbyggingu sérskóla fyrir börn sem þurfa sérþjónustu og ekki næg á að tryggja að sú þjónusta standi til boða innan almenna skólakerfisins. Þroskahjálp vinnur að réttindum og hagsmunum fatlaðs fólks.Formaður Þroskahjálpar segir alvarlegt ef sérskólar verða notaðir til að færa fötluð börn úr almennu skólasamfélagi.Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu, hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu sérskólaúrræða. Bið eftir sérþjónustu er mikil og sum sérskólaúrræði, líkt og Klettaskóli, eru löngu sprungin. 136 Í SKÓLA FYRIR 90 BÖRN Klettaskóli rúmar til að mynda um 90 nemendur en 136 börn eru í skólanum, þrátt fyrir að 41 hafi verið synjað í fyrra, samkvæmt sk