Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020.