Troðfullur komusalur vegna tafa hjá landamæraeftirliti

Nokkur töf varð við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum í morgun og hafði það áhrif á fjölda fólks sem kom til landsins með morgunflugi. Eftirfarandi færsla var birt í Facebook-hópnum Iceland Travel Tips og í einni athugasemd segist ferðalangur hafa beðið í tvær klukkustundir.Ferðalangur birti þessa færslu í Facebook-hópnum Iceland Travel Tips í morgun.Skjáskot / FacebookSamkvæmt upplýsingum frá Isavia varð töf á vinnslu í landamærakerfi Evrópusambandsins sem verið er að taka í notkun að fullu þessa dagana. Tafir hafa orðið á flugvöllum víðar í Evrópu af sömu ástæðu.Isavia segist gera ráð fyrir því að fólk hafi beðið í ríflega hálftíma en kveðst ekki geta fullyrt um hvort einhverjir hafi beðið lengur.
Troðfullur komusalur vegna tafa hjá landamæraeftirliti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd