Jóhannes Bjarki Bjarkason skrifar:Kannski… er önnur breiðskífa djasstónlistarkonunnar Rebekku Blöndal sem hefur verið virk innan senunnar í þó nokkurn tíma. Á meðal viðurkenninga sem hún hefur hlotið eru Íslensku tónlistarverðlaunin, hún hlaut glæru styttuna fyrir söng ársins árið 2023.Og skyldi engan undra. Eitt af því sem skín skærast á nýútgefinni plötu hennar er söngurinn sjálfur. Á plötunni fær Rebekka aðstoð frá FÍH samnemendum í Moses Hightower, Ara Frank Ingusyni (betur þekktur sem Ari Árelíus), og djassgeggjaranum Sigurði Flosasyni. Samspilið er laglegt. Moses-bræður leggja niður skýrar línur með sínum áþekka indí-djassblæ, og á köflum má heyra þekktan bakraddastíl þeirra. Ari syngur með Rebekku í hinu dulúðlega lagi Vofa sem minnir á óskalag bollalesara, á meðan Sigurðu ljáir plö