Skólastofan færð í fjósið og fjárhúsin

„Ég skal samt alveg vera hreinskilinn, sumir eru mjög spenntir, aðrir töluvert minna spenntir, en heilt yfir hefur þetta gengið mjög vel og ég held að þau fái mikið út úr þessu,“ segir Óðinn Ásgeirsson, umsjónarkennari Sveitasælu í Hrafnagilsskóla.Sveitasæla er hluti af svokölluðu bundnu vali sem kennt er einu sinni í viku allan veturinn. Þar er nemendum á unglingastigi skipt í fimm aldursblandaða hópa og hver hópur fer í sjö skipti á hverja stöð. Stöðvarnar eru: Betri líðan, náms- og starfsfræðsla, tónlist, heimilisfræði og svo sveitasæla sem kennd er á bóndabænum Hrafnagili hjá hjónunum Berglindi og Jóni Elvari.Samtökin Heimili og skóli verðlaunuðu verkefnið nýlega og gera þau ráð fyrir að halda verkefninu áfram.Þú getur séð meira frá ævintýrunum í sveitinni í spilaranum hér að ofan.
Skólastofan færð í fjósið og fjárhúsin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd