Vistkerfi berskjölduð fyrir ágengum tegundum

Óskýrt regluverk um ágengar framandi tegundir þýðir að vistkerfi og menningararfur í íslenskri náttúru eru óvarin. Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands, segir mikilvægt að tekið sé á þessu í fyrirhugaðri aðgerðaráætlun stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni.Framandi ágengar tegundir geti herjað á íslenska náttúru sé ekki sett skýrt regluverk og öflugt eftirlit. Sæunn Júlía segir skýrasta dæmið um þetta vera lúpínuna, sem er skilgreind sem ágeng framandi tegund.„Þetta getur haft mjög neikvæð áhrif á vistkerfi en líka á fólk og samfélög því þarna erum við í rauninni að breyta ásýnd lands í fyrsta lagi en líka menningarlegum þáttum eins og til dæmis berjalynginu. Þarna erum við að missa þannig landsvæði sem eru mjög mikilvæg fyrir okkur menningarlega séð,“
Vistkerfi berskjölduð fyrir ágengum tegundum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd