Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir stjórnvöld hafa upplýsingar um að Rússar séu að undirbúa umfangsmikla árás á landið. Úkraínumenn halda á sama tíma áfram árásum á olíuinnviði í Rússlandi.Rússar skutu fjölda dróna á Úkraínu um síðustu helgi. Slíkar árásir voru einnig gerðar í fyrrinótt en einn drónanna hafnaði á fjölbýlishúsi í Rúmeníu. Ef marka má skilaboð sem Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sendi á samfélagsmiðlum í gær er það aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal. Þar segir hann að yfirvöld hafi upplýsingar í gegnum leyniþjónustu um að Rússar séu að undirbúa nýja og umfangsmikla árás. Íbúar eru beðnir um að fylgjast vel með loftvarnarflautum og gæta að eigin öryggi. Herinn vinni í málinu og flugherinn og aðrir í vörnum landsins séu á sólarhringsvakt eins og alltaf. RÚSSA