Hegseth: „Við getum auðveldlega hafið stríðið að nýju“

Donald Trump forseti Bandaríkjanna tók enga ákvörðun um drög að samkomulagi um stríðslok í Íran í gærkvöld, þó að hann hafi boðað slíkt fyrir fundinn. Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að þeir geti auðveldlega hafið stríðið að nýju.Skilaboð frá Hvíta húsinu undanfarna daga hafa gefið til kynna að samkomulag við Íran sé í augsýn, þó að yfirvöld í Íran hafi ekki gefið það sama til kynna. Samningaferlið virðist hafa haldið þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi gert árásir á hafnarborgina Bandar Abbas fyrr í vikunni, sem var svarað með árásum Írana á bandarískar herstöðvar. Heimildir AFP-fréttastofunnar herma að drög að samningi liggi fyrir sem bíði aðeins staðfestingar Trumps. Sá samningur myndi þýða 60 daga vopnahlé og að á meðan yrði rætt um framtíð kjarnorkuáætlunar Írana. T
Hegseth: „Við getum auðveldlega hafið stríðið að nýju“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd