Annar maður grunaður um aðild að hvarfi Anne-Elisabeth Hagen

Lögregla í Noregi hefur nýjan mann grunaðan um aðild að hvarfi Anne-Elisabeth Hagen. Maður á sextugsaldri er til rannsóknar hjá lögreglu en hann fékk nýverið að vita af rannsókninni.Anne-Elisabeth, eiginkona milljarðamæringsins Tom Hagen, hvarf sporlaust af heimili þeirra hjóna í október 2018. Ekkert hefur gengið að ráða gátuna um hvarf hennar síðan þá. Tom Hagen hefur haldið því fram að henni hafi verið rænt af heimilinu og að mannræningjarnir hafi krafist lausnargjalds. Fljótlega beindist grunur að Hagen sjálfum og sat hann í gæsluvarðhaldi í heila viku.Að lokum var hann þó leystur undan grun vegna skorts á sönnunargögnum.Maðurinn sem er nú grunaður um aðild að hvarfinu er norskur ríkisborgari. Hann var handtekinn eftir að lögregla fann einhvern hlut við leit hjá honum en lögregla vill e
Annar maður grunaður um aðild að hvarfi Anne-Elisabeth Hagen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd