Lögreglan á Suðurlandi verst allra fregna um sérsveitaraðgerð í Hveragerði í gærkvöld. Ein kona var handtekin á bílastæðinu við N1 í Hveragerði.Í myndskeiði af handtökunni sem Vísir birti í gærkvöld má sjá nokkra sérsveitarmenn hlaupa að bifreið hennar og færa hana í handjárn.Einar Sigurjónsson aðstoðarvarðstjóri segir lögregluna ætla að halda spilunum þétt að sér í þessu máli. Hann vildi ekki segja hvort handtakan væri liður í stærri lögregluaðgerð.Ekki hefur náðst í samskiptastjóra ríkislögreglustjóra við gerð fréttarinnar.