Helmingur alvarlegustu áhættuþátta á heimsvísu næstu tíu árin tengjast umhverfismálum. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins, WEF, sem titluð er The Global Risk Report og metur alþjóðlega áhættuþætti. Í efstu þremur sætunum eru öfgakenndir veðuratburðir, hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og hrun vistkerfa og krítískar breytingar á kerfum jarðar. Skortur á auðlindum og mengun skipa sjötta og tíunda sæti listans. Skýrsla...