Flugvellinum í München var lokað um skamma stund í morgun vegna gruns um að óþekktur dróni væri á sveimi á flugvallarsvæðinu. Þýska blaðið Bild segir að flugmaður hafi gert „grunsamlega uppgötvun“ um klukkan níu í morgun að staðartíma. Engar vélar tóku á loft eða lentu á vellinum í rúma klukkustund.Lögregla og viðbragðsaðilar hafa leitað að drónanum en eftir því sem næst verður komist hefur enginn fundist. Torkennilegir drónar hafa sést á sveimi við fleiri flugvelli í Evrópu á síðustu mánuðum. Í haust var flugvöllum í Danmörku og Noregi lokað um nokkurra klukkustunda skeið vegna drónaflugs.EPA / ANNA SZILAGYI