Allhvasst við suðausturströndina

Lægð suður í hafi og hæð norðan lands beina norðaustan- og austanátt til landsins. Búast má við 5 til 13 metrum á sekúndu í dag og rigningu með köflum. Allhvasst verður við suðausturströndina þar sem búist er við 10 til 18 metrum á sekúndu.Líkur eru á slyddu austanlands með snjókomu til fjalla en eftir hádegi fer heldur hlýnandi þar. Hiti verður 3 til 10 stig í dag, mildast á Vesturlandi.Á morgun má búast við austlægri eða breytilegri átt, víða golu eða kalda. Súld eða dálítilli rigningu á Suðaustur- og Austurlandi.Hiti 4 til 9 stig en um landið vestanvert er gert ráð fyrir stöku skúrum og að hiti verði að 15 stigum.RÚV / Ragnar Visage
Allhvasst við suðausturströndina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd