Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fíkniefnaviðskipti við grunnskóla í vesturhluta borgarinnar í gær. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglumenn við almennt eftirlit hafi orðið varir við grunsamlega háttsemi við grunnskóla og handtekið einn með bakpoka sem innihélt mikið magn fíkniefna og fjármuna. Hann var vistaður í fangaklefa.