Maður handtekinn fyrir ógnandi tilburði með skærum og annar með fullan poka fjár og fíkniefna

Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í miðborginni sem hafði uppi ógnandi tilburði og beitti skærum við að skemma bíl í gærkvöld eða nótt. Í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að hann hafi sömuleiðis hótað lögreglumönnum öllu illu. Annar var tekinn höndum með bakpoka fullan af fíkniefnum og fjármunum eftir stutta eftirför frá grunnskólalóð í miðborginni þar sem lögreglumenn sáu nokkra menn skipast á hlutum eins og það er orðað. Lögregla rannsakar einnig hvað leiddi til þess að svokallaður bílahittingur við verslanamiðstöð í úthverfi endaði með skemmdarverkum og slagsmálum. Auk þessa hafði lögreglan afskipti af ökumönnum sem sumir voru undir áhrifum og aðrir á bílum búnum nagladekkjum. Átta gistu fangageymslur í morgun.
Maður handtekinn fyrir ógnandi tilburði með skærum og annar með fullan poka fjár og fíkniefna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd