Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðarbyggingarlandi höfuðborgarsvæðisins. Erfðaskrána gerði Magnús Hjaltested Einarsson, eigandi Vatnsendajarðarinnar, 1938. Hún kveður á um að hin flennistóra Vatnsendajörð skuli tilheyra elsta syni ákveðins leggjar Hjaltested-ættarinnar og ganga í erfðir frá elsta syni til elsta sonar. Erfðaskráin fylgir erfðaröð konunga og trompar erfðareglur í landinu og ákvæði stjórnarskrár um jafnan rétt kynjanna. Hún hefur verið kveikja að hatrömmum deilum í Hjaltested-ættinni og áratugalöngum málaferlum. Deilurnar hafa snúist um hver megi hafa tekjur af landinu og hver eigi tilkall til ættaróðalsins sem stendur á besta stað við Elliðaárvatn.Vatnendajörðin er tugmilljarða virði og á henni er meðal annars vatnsforðabúr höfuðborgarsvæðisins. BÖLVUNIN Í þæt