Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem verður áttræður 14. júní, er við hestaheilsu samkvæmt upplýsingum læknis hans sem segir forsetann þó mega við að missa nokkur kíló. Hann væri fullkomlega fær um að sinna öllum skyldum þjóðarleiðtoga og yfirmanns heraflans.„Heilsa Trumps forseta er hin besta hvað snertir hjarta, lungu, taugar og almenna líkamlega virkni,“ segir í þriggja blaðsíðna minnisblaði læknisins Sean Barbabella eftir læknisskoðun á fimmtudag.Læknirinn segist jafnframt hafa veitt forsetanum fyrirbyggjandi ráð varðandi mataræði og hreyfingu til að minnka þyngd auk þess sem mælt er með að hann taki áfram lítinn skammt af asperíni.Læknirinn segir marbletti á handarbaki Trumps tilkomna vegna ertingar í mjúkvefjum tengda tíðu handabandi og notkun aspíríns til að blóðþynningar svo koma me