Háværar deilur vegna áforma um byggingu stærsta gagnavers heims

Háværar deilur hafa risið vegna áforma kanadíska fjárfestisins Kevins O'Leary um að reisa það sem getur orðið stærsta gagnver heims í bandaríska ríkinu Utah. Slíkar deilur eru ekki óalgengar í Bandaríkjunum.Samkvæmt teikningum mun Stratos-verið þarfnast níu gígavatta orku og þekja um 160 ferkílómetra svæði sem jafngildir nokkurn veginn samanlögðu flatarmáli Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar.Sveitarstjórn Box Elder-sýslu gaf snemma í maí leyfi til byggingar versins þrátt fyrir mótmæli þúsunda manna. Náttúruverndarsinnar segja ákvörðunina afar ábyrgðarlausa enda geti gagnaverið ógnað lífríki Stóra-Saltvatns sem farið hefur hnignandi árum saman.O'Leary segir af og frá að vatnið verði í hættu af völdum versins, það þurfi aðeins fjórðung þess landsvæðis sem úthlutað var auk þes
Háværar deilur vegna áforma um byggingu stærsta gagnavers heims

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd