Sprengingin sem gereyddi New Glenn-eldflaug Blue Origin í gær er mikið áfall fyrir geimferðafyrirtækið og NASA, sem vinna saman að undirbúningi fyrirhugaðra tunglferða. Eldflaugin volduga er í hjarta Artemis-áætlunarinnar og gæti haft áhrif á næstu skref hennar.Jared Isaacman forstjóri NASA fyrirskipaði umsvifalaust ítarlegri rannsókn á þessu mikla fráviki sem gerðist meðan verið var að undirbúa flaugina fyrir tilraunaskot frá Canaveral-höfða og prófa kveikibúnað hennar.Engan sakaði en flaugin leystist upp í frumeindir og skotpallurinn skemmdist verulega. Algengt er að eitthvað bregði út af við prófanir en jafngríðarlegar sprengingar eru mjög fátíðar.Sprengingin setur líka strik í reikninginn fyrir Amazon Leo-gervihnattaáætlun Jeff Bezos, eiganda Blue Origin, sem ætlað er að keppa við Star