Bandaríkin fagna „uppbyggilegum“ samræðum ísraelskra og líbanskra herforingja

Ísraelskir og líbanskir herforingjar áttu „uppbyggilegar“ viðræður um frið milli ríkjanna í bandarísku höfuðborginni Washington í gær að sögn Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann sagði í færslu á X samtalið bæta miklu við þær formlegu, diplómatísku viðræður sem fram undan séu undir stjórn utanríkisráðuneytisins. Colby nefnir ekki vopnahlé milli Ísraels og Hezbollah sem átti að ganga í gildi 17. apríl en hefur ekki verið framfylgt. Joseph Aoun Líbanonforseti hefur lagt mikla áherslu á allsherjar vopnahlé sem grundvöll friðar við utanríkisráðherrann Marco Rubio. Hann hrósaði Aoun fyrir vilja til viðræðna við Ísrael og kenndi jafnframt Hezbollah-hreyfingunni um yfirstandandi átök.Þetta var fyrsti fundur herforingja Ísraels og Líbanons um áratugaskeið og Colby kvaðst
Bandaríkin fagna „uppbyggilegum“ samræðum ísraelskra og líbanskra herforingja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd