Öryggismál voru rædd á stuttum fundi bandarísks og kúbansks hershöfðingja, þeirra Francis Donovan og Roberto Legra Sotolongo, í bandarísku herstöðinni við Guantanamo-flóa á Kúbu í gær.Í tilkynningu suðurdeildar Bandaríkjahers segir að Donovan hafi rætt öryggi hermanna, viðbúnað þeirra og öryggismat fyrir stöðina.Hún væri mikilvæg fyrir birgðaflutninga og viðbrögð hersins gegn þeim ógnum sem blasa við öryggi, stöðugleika og lýðræði í heimshlutanum. Herstöðin er alræmd fyrir grimmilegt athæfi gegn föngum grunuðum um aðild að hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 2001.Samskipti ríkjanna hafa verið einstaklega stirð undanfarið eftir að Donald Trump fyrirskipaði hafnbann á olíuskip frá Venesúela ásamt því að hóta ítrekað innrás í Kúbu. Í síðustu viku bárust þau tíðindi að stjórnvöld á Kúbu fyrirhugu