Eldsneytisskortur gæti blasað við heimsbyggðinni í sumar haldi Íranir áfram að takmarka verulega siglingar um Hormússund. Olíuflutningaskip á siglingu.EPA / GUILLAUME HORCAJUELOÞetta er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Alþjóðabankans og Alþjóðaorkustofnunarinnar. Um það bil fimmtungur allrar olíu heimsins er fluttur um sundið á friðartímum, sem hefur verið nánast algerlega lokað frá því í febrúarlok þegar Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran. Mörg ríki ganga á varabirgðir olíu í mun meira mæli en nokkru sinni fyrr. Olíuskorturinn hefur mest áhrif á lágtekjuríki í Suður- og Suðaustur-Asíu þar sem síhækkandi olíu- og áburðarverð er tekið að ógna fæðuöryggi.