Óvissa um samkomulag við Íran eftir tveggja tíma fund í Hvíta húsinu

Eftir tveggja tíma fund í Hvíta húsinu sem lauk nýlega liggur enn ekki fyrir hvort Donald Trump Bandaríkjaforseti ætli að samþykkja mögulegt samkomulag við Íran, sem samningamenn beggja ríkja hafa rætt undanfarna daga.Bandarískir embættismenn greindu frá því í gær að samningurinn feli í sér 60 daga framlengingu á vopnahléinu og upphaf viðræðna um kjarnorkumál Írans. Einnig að Hormússund verði opnað á ný og hafnarbanni Írans aflétt.Trump segist aðeins gera friðarsamkomulag við Íran ef það uppfyllir öll skilyrði hans. Þetta sagði embættismaður í Hvíta húsinu í samtali við AFP-fréttastofuna eftir að leiðtogi Bandaríkjanna átti fund með ráðgjöfum sínum til að ræða mögulegt samkomulag.„Trump forseti mun aðeins gera samkomulag sem er gott fyrir Bandaríkin og uppfyllir rauðu línurnar hans. Íran m
Óvissa um samkomulag við Íran eftir tveggja tíma fund í Hvíta húsinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd