Edduverðlaunin voru veitt í kvöld við hátíðlega athöfn í Gullhömrum. Ástin sem eftir er var valin kvikmynd ársins og þættirnir Vigdís sjónvarpsefni ársins. Hlynur Pálmason, Tinna Hrafnsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson voru valin leikstjórar ársins í flokkum kvikmynda og sjónvarps.Ástin sem eftir er hlaut flest verðlaun, sjö talsins, en þættirnir Vigdís hlutu sex verðlaun. Kvikmyndin Eldarnir og þættirnir Felix & Klara hlutu fimm verðlaun hvor.Saga Garðarsdóttir var valin leikkona ársins í aðalhlutverki í flokki kvikmynda fyrir Ástina sem eftir er og Ída Mekkín Hlynsdóttir leikkona ársins í aukahlutverki fyrir sömu mynd. Í flokki sjónvarps var Elín Hall valin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir Vigdísi og Lára Jóhanna Jónsdóttir hlaut verðlaun fyrir aukahlutverk í Reykjavík Fusion.Sverri