Ástin sem eftir er hlaut sjö verðlaun á Eddunni í kvöld en hún var valin kvikmynd árins, þrír leikarar hennar voru verðlaunaðir auk þess sem Hlynur Pálmason hlaut verðlaun fyrir leikstjórn, handrit og kvikmyndatöku. Sjónvarpsþáttaröðin Vigdís hlaut sex verðlaun semog hamfaramyndin Eldarnir. Miðaldaþættirnir King and Conqueror sem hlutu ellefu tilnefningar fengu engin verðlaun.