Þorsteinn Jónsson er heiðursverðlaunahafi Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar 2026. Hann hlaut viðurkenninguna á verðlaunahátíð Eddunnar í kvöld sem haldin var í Gullhömrum með pompi og prakt.Þorsteinn er einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndalistar og hluti af þeim hópi fólks sem ýtti íslenskri kvikmyndagerð úr vör á seinni hluta tuttugustu aldar. Viðurkenninguna hlýtur hann fyrir framúrskarandi og áratugalangt framlag sitt til íslenskrar kvikmyndagerðar.Hann er fæddur í Reykjavík 1946 og þegar hann var 22 ára var hann fluttur til Prag að nema kvikmyndagerð við hinn kunna kvikmyndaskóla FAMU. Þá stóð blómaskeið tékkneskra kvikmynda sem hæst og þær vöktu mikla athygli umheimsins.Hann var þó ekki nema rétt nýkominn til Prag þegar Rússar réðust inn í Tékkóslóvakíu og varð vitni að