Fornar gersemar fundust í Árbæ

Aldagamall steinkross kom upp úr jörðinni í fornleifauppgreftri í Árbæ í gær. Sólrún Inga Traustadóttir fornleifafræðingur segir fundinn óvæntan, rannsóknir hafa staðið þar yfir í tíu ár.Fornleifarannsóknir á bæjarstæði Árbæjar hófust 2016, að þeim hefur komið fjöldi fornleifafræðinga, nemendur í fornleifafræði og fleiri. „Við erum örugglega komin í 100 ef ég tel alla með, sérfræðingana,“ segir Sólrún. TALSVERT AF GRIPUM HAFA FUNDIST Hún segir talsvert af mannvirkjum hafa fundist, t.d. frá 13. eða 14. öld. Þá hafi fundist nokkuð af gripum - einn slíkur fannst í gær og það var steinkross. „ Svolítið óvænt. Hann er hér. Hann er úr íslensku grjóti og hefur sennilega verið búinn til á staðnum.“Nokkrir áþekkir steinkrossar hafa fundist hér á landi, meðal annars í Viðey og Reykholti. Á TOPP
Fornar gersemar fundust í Árbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd