Verkfalli háseta og bátsmanna hefur verið aflýst. Þetta staðfestir Bergur Þorkelsson formaður Sjómannasambands Íslands. Ótímabundið verkfall háseta og bátsmanna í Sjómannafélagi Íslands á þremur skipum Eimskips hófst á mánudaginn en núningur laut einkum að mönnun skipa.„Við skrifuðum undir samkomulag við Eimskip um mönnun skipanna núna um kvöldmatarleytið í kvöld þannig að það er búið að aflýsa verkfalli,“ segir Bergur.„En kjarasamningum er ekki lokið en launaliðurinn var orðinn klár. Þetta steytaði náttúrulega bara á mönnun, um það snerist verkfallið en nú er því lokið og allir sæmilega sáttir.“Hann segir stefnt að því að klára samninginn í næstu viku og að félagsmenn kjósi um hann í kjölfarið. HAFA MIKLA TRÚ Á SJÓMANNASTÉTTINNI Í tilkynningu frá Eimskip segir að félagið sé ánægt með a