Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips en því hefur nú verið aflýst. Það er í kjölfar þess að Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) undirrituðu samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á skipum félagsins, Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi.