Edduverðlaunin – Bein útsending

Mikið verður um dýrðir í Gullhömrum í kvöld þegar kvikmynda- og sjónvarpsverðlaun Eddunnar verða afhent í 35 flokkum auk heiðursverðlauna og uppgötvunar ársins. Verðlaunaðir eru þeir sem þykja hafa skarað fram úr á sviði skapandi kvikmynda- og sjónvarpslistar. Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut flestar tilnefningar, 13 talsins. Eldarnir hlutu 12 tilnefningar og The Damned 8. Af leiknu sjónvarpsefni hlutu þættirnir Felix & Klara flestar tilnefningar eða 11 talsins, King and Conqueror hlaut 11 og Vigdís 9.Allar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár má finna hér.Sýnt verður frá athöfninni í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir ofan kl. 19:00. Handritshöfundurinn og uppistandarinn Karen Björk Eyfjörð Þorsteinsdóttir stýrir athöfninni.
Edduverðlaunin – Bein útsending

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd