K-listi og Framsókn mynda meirihluta á Dalvík

K-listinn og Framsókn skrifuðu í dag undir málefnasamning í Dalvíkurbyggð til næstu fjögurra ára. Viðræður höfðu staðið flokkanna á milli frá því fljótlega eftir kosningar.K-listinn var aðeins þremur atkvæðum frá hreinum meirihluta og hafði starfað með Sjálfstæðisflokknum í meirihluta undanfarin fjögur ár. Nú er honum hins vegar skipt út fyrir Framsókn.Einnig var tilkynnt að Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir verður áfram sveitarstjóri en hún tók til starfa árið 2022.Monika Margrét Stefánsdóttir, oddviti Framsóknar, og Helgi Einarsson, oddviti K-listans, handsala skrifa undir meirihlutasamkomulag á Dalvíkdalvikurbyggd.is
K-listi og Framsókn mynda meirihluta á Dalvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd