Donald Trump Bandaríkjaforseti situr á fundi þar sem hann hyggst ákveða hvort hann samþykki nýtt vopnahléssamkomulag við Íran. Hann greindi frá þessu á samfélagsmiðli sínum Truth Social síðdegis.Samkvæmt því sem bandarískir embættismenn lýstu í gær kveður samnigurinn á um framlengingu vopnahlés í 60 daga og upphaf viðræðna um framtíð kjarnavopnaáætlunar Írans. Þá mun samkomulagið kveða á um opnun Hormússunds og afléttingu hafnarbanns Írans.Ef marka má færslu Trumps á Truth Social fyrr í dag fer hann fram á að Íranar gangi mun lengra að kröfum Bandaríkjanna til að hann samþykki vopnahléið. Til dæmis segir hann að Íranar verði að opna Hormússund og gera umferð um það tollfrjálst, en íranska fréttaveitan Fars segir ekkert slíkt hafa verið samþykkt.Þá segir Trump að Íran verði að samþykkja að