Ferðaþjónustufyrirtæki á Austurlandi segja bókanastöðu sumarsins góða og víða sé nær fullbókað yfir háannatímann. Meiri óvissa ríki hins vegar um haustið þar sem ferðamenn bóka í auknum mæli með stuttum fyrirvara og erfiðara sé að sjá langt fram í tímann.