Óprúttnir aðilar hafa reynt að komast yfir banka- og kortaupplýsingar fólks með því að blekkja það til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer. Svikin eru framkvæmd í gegnum tölvupóst sem leiðir viðtakanda inn á vefsíðu sem líkist vef Íslandsbanka.Íslandsbanki ítrekar í tilkynningu að aldrei sé óskað eftir því í gegnum tölvupóst að viðskiptavinir skrái sig inn með rafrænum skilríkjum eða gefi upp öryggisnúmer, kortaupplýsingar eða aðrar viðkvæmar upplýsingar í gegnum tengla sem eru sendir með þessum hætti.RÚV / Ragnar Visage