Utanríkisráðherra Frakklands hefur falið saksóknurum að rannsaka meðferð ísraelskra yfirvalda á frönskum ríkisborgurum sem handteknir voru um borð í skipum á vegum Global Sumud Flotilla fyrr í þessum mánuði.Jean-Noel Barrot utanríkisráðherra sagði í viðtali við frönsku útvarpsstöðina France Inter í dag að hann hefði átt í samskiptum við aðalræðismann Frakklands í Tyrklandi, sem hafi greint honum frá kynferðisofbeldi, barsmíðum og endurtekinni niðurlægingu sem franskir ríkisborgarar hefðu orðið fyrir í haldi Ísraels.„Öll þessi athæfi eru líkleg til að teljast refsiverð brot og ég ákvað í gær að vísa málinu til saksóknara,“ sagði Barrot.Ísrael hefur áður verið gagnrýnt fyrir meðferð sína á erlendum ríkisborgurum sem handteknir hafa verið um borð í skipum á leið til Gaza með vistir.