Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 2. júní. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks mun leggja fram ýmsar tillögur. Kosning borgarstjóra auk forseta og varaforseta borgarstjórnar fer fram á fundinum og einnig kosið. Þetta kemur fram í fundardagskrá borgarstjórnar. ENDURVEKJA ÖLDUNGARÁÐ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hyggjast leggja fram tillögur um stofnun þriggja nýrra ráða: leikskóla- og daggæsluráðs, menningarráðs og öldungaráðs. Meirihluti Samfylkingar, Flokks fólksins, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalista lagði niður öldungaráð í fyrra og færði verkefni þess til mannréttindaráðs.Þá leggur meirihlutinn einnig til að stafrænt ráð verði lagt niður, breytingar á heiti og verke