Dvelur enn á sjúkrahúsi í Noregi eftir lögregluaðgerð í Keflavíkurkirkjugarði

Maður sem brenndist illa eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum dvelur enn á sjúkrahúsi í Bergen í Noregi. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Vilhjálmur vildi ekki tjá sig frekar um ástand mannsins.Mál mannsins er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara og treystir Vilhjálmur því að héraðssaksóknari vinni það hratt og örugglega.Maðurinn var fluttur til frekari aðhlynningar til Noregs 20. maí eftir að rafvopni var beitt í aðgerðum lögreglu í Keflavíkurkirkjugarði. Maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva og kviknaði í honum eftir að lögregla beitti rafbyssu. Lögregla telur að hann hafi borið að sér eld en getur ekki útilokað að vopnið hafi ekki valdið íkveikjunni.
Dvelur enn á sjúkrahúsi í Noregi eftir lögregluaðgerð í Keflavíkurkirkjugarði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd