„Niðurstöður skýrslunnar eru að kostnaður Íslands við að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli er mjög mikill og verulegir gallar á núverandi fyrirkomulagi,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.Hann vísar til skýrslu sem unnin var fyrir ráðuneyti hans um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Í henni voru kostir og gallar krónunnar skoðaðir í samanburði við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu.Í inngangi skýrslunnar segir að skýrsluhöfundum hafi verið falið að undirbúa gögn sem skiptu máli fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við ESB í ágúst.„Mat skýrsluhöfunda er að það væri mjög vænlegur kostur fyrir Ísland að taka upp evru ef við veljum að ganga inn í Evrópusambandið,“ segir fjármálaráðherra. MEIRI STÖÐUGLEIKI MEÐ EVRUNNI Greining