Evrópusambandið hefur opnað fyrir aðgang að fé til Ungverjalands sem var fryst vegna áralangra deilna við Viktor Orban og stjórn hans. Þetta tilkynnti Ursula Von Der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB í morgun, eftir fund með Peter Magyar, nýjum forsætisráðherra Ungverjalands.Tíu milljörðum evra hefur verið haldið eftir vegna athugasemda sambandsins við spillingu og stöðu réttarríkisins þar í landi. Alls fá Ungverjar 16 milljarða evra samkvæmt samkomulaginu. Það jafngildir um einum áttunda af fjárlögum landsins.Magyar og flokkur hans Tizsa unnu sigur í þingkosningunum í síðasta mánuði, eftir 16 ára valdatíð Orbans, og hefur síðan lagt ofuráherslu á að bæta sambandið við ESB til að hægt verði að losa um fjármunina.Magyar sagði eftir fundinn að samningaviðræðurnar við ESB hefðu verið stra