Steinunn Anna og Arnór Steinn handhafar nýræktarstyrkja 2026

Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir og Arnór Steinn Ívarsson hlutu nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta í Gunnarshúsi í gær. Steinunn fær styrk fyrir smásagnasafnið Himinbjörg og Arnór fyrir skáldsöguna Hreiður. Þetta er í 19. sinn sem nýræktarstyrkir eru veittir og styrkupphæð er 600 þúsund krónur.Víðsjá tók höfundana tali og þeir segja það mikinn heiður að hljóta þennan styrk. SÖGUR SEX KVENNA Steinunn segir Himinbjörg innihalda sögur um sex konur. „Þetta eru leitandi konur, þetta eru sterkar konur, þær eru viðkvæmar. Þær eru eins og íslenskar konur í dag, sterkar og veikar og gera allt mögulegt til að halda sínu striki en eru samt með ýmsar brotalamir úr æsku og þær eru að finna sig í tilverunni. Svo er náttúrlega eins og í öllum íslenskum sögum, þá eru draugar og huldufólk og drau
Steinunn Anna og Arnór Steinn handhafar nýræktarstyrkja 2026

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd