Kanadískur karlmaður hefur játað sök fyrir að hafa aðstoðað 14 manns við að fremja sjálfsvíg með því að selja þeim eitur í gegnum netið. Samkvæmt kanadískum yfirvöldum hefur maðurinn sent 1.200 pakka með eitri til fólks í 41 landi víðs vegar um heiminn.Kenneth Law er 60 ára gamall og játaði brotin 14 gegn því að saksóknarar féllu frá alvarlegri ákærum fyrir morð.Law er menntaður verkfræðingur en starfaði sem matreiðslumaður á lúxushóteli í Toronto þegar hann var handtekinn fyrir þremur árum. Law hélt úti nokkrum fjölda vefsíða þar sem hann seldi natríumnítrít og önnur efni.Samkvæmt BBC hefur maðurinn sent minnst 100 manns pakka til Bretlands, og talið er að hægt sé að rekja 73 andlát í Bretlandi til eiturs sem maðurinn útvegaði. Hann komst í kynni við viðskiptavini sína í gegnum sjálfsvígs