Forstjóri smásölufyrirtækisins Dranga segir að ekki til standi að opna aftur verslun á Bolungarvík á Vestfjörðum eftir að Kjörbúðinni þar var lokað nú í maí. Þetta segir forstjórinn, Auður Daníelsdóttir, þegar hún er spurð út í kaup Dranga á 25 fasteignum af dótturfélagi Kaupfélags Suðurnesja. Verslunarhúsnæðið í Bolungarvík var ein af þessum fasteignum. „Við vorum að kaupa þessar 25 fasteignir. Þetta er verslunarhúsnæði um allt land. Það er stefnan hjá okkur að halda áfram með verslun í flestum þessum fasteignum. Þetta eru góðar staðsetningar á þessum fasteignum og það krefst þess að fara í ákveðnar endurbætur þannig við töldum það vera best að eignast þessar fasteignir þannig að við getum gert við þær sjálf,“ segir Auður í samtali við fréttastofu.Kaupfélagið á Suðurnesjum sem selur þessa