Tuttugu og fimm ára gamalt hitamet maímánaðar var slegið í Portúgal í gær þegar hiti náði 40,3 stigum. Í dag er útlit fyrir að hiti fari víða yfir 35 stig í landinu. Rauð viðvörun hefur verið gefin út í ítölsku höfuðborginni Róm í dag, þar sem hiti náði 32 stigum í gær. Forsætisráðherra Frakklands hefur sett saman ráðherranefnd til að meta viðbúnað landsins til að takast á við hitabylgjur. Útlit er fyrir að hitabylgjan sem nú gengur yfir Evrópu haldi áfram inn í helgina og veðurspár gera ráð fyrir 34 stigum í París á morgun.Barn kælir sig niður í Lisbon í Portúgal.EPA / MIGUEL A. LOPES