„Það er gott að koma þessu út. Ég er búin að vera að hugsa um hana svo lengi og síðustu undanfarna mánuði er ég búinn að vera svolítið á kafi í þessu. Það er bara næs að koma því frá mér og koma þessu út og klára dæmið,“ segir Ægir um tíundu sólóplötu sína, Conditioned by experience.conditioned by experience by Ægir„Áður en ég byrjaði að gera tónlist einn og sjálfur hvarflaði aldrei að mér að ég gæti það, ég var bara trommari og mér fannst ég alltaf vera svolítið of bundinn öðrum til þess að skapa og spila og búa eitthvað til,“ segir Ægir. Vinur hans stakk svo upp á því snemma árið 2019 að hann héldi sólótónleika í Mengi. Þá kviknaði áhuginn og Ætir fór að búa til tónlist.„Fyrst um sinn var ég bara að vinna með trommur og effektapedala, taka upp lúppur og prófa að keyra þessar trommur í ge