Sauðfé í skjól undan éljagangi og kornbændur vona að ekki frysti

Vetrarfærð er á fjallvegum um landið norðaustan- og austanvert. Bændur hafa orðið að hýsa sauðfé og kornbændur vona að veðrið gangi hratt yfir.Snemmsumar er viðkvæmur tími í ýmiss konar útiræktun. Júníhret síðustu tvö ár fór illa með kornbændur víða um landið norðanvert og miðað við spákortin var óvíst hvort akrarnir myndu fölna þriðja árið í röð.Hjólreiðamaður á Borgarfirði eystra sendi fréttastofu þetta myndband af færðinni á Vatnsskarði í morgun:Hálka, snjóþekja eða krapi er á fjallvegum austanlands og gul viðvörun í gildi fram á kvöld. Bændur í kornrækt segjast vongóðir um að uppskeran sleppi, hretið sé ekki eins slæmt og í fyrra.Haukur Marteinsson, kúa- og kornbóndi í Þingeyjarsveit, segist telja að þetta sleppi til hjá flestum - en samkvæmt spánni tekur að hlýna nú um helgina.„Í fyrr
Sauðfé í skjól undan éljagangi og kornbændur vona að ekki frysti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd