„Við erum afskaplega þakklátar fyrir þessa niðurstöðu Landsréttar. Það má segja að þetta hafi verið langþráður sigur í málinu,“ segir Sigrún Jóhannsdóttir, réttargæslumaður konu sem var beitt grófu kynferðisofbeldi af bróður sínum um árabil þegar hún var barn.Dómur féll í málinu í Landsrétti í vikunni og maðurinn var dæmdur til fjögurra ára skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.Konan sagði bróður sinn hafa brotið á sér frá því hún var þriggja eða fjögurra ára þangað til hún var ellefu ára. Hann játaði fyrir dómi að hafa brotið á henni áður en hann náði sakhæfisaldri en Landsréttur sakfelldi hann fyrir brot eftir að hann varð fimmtán ára. ÞARF EKKI AÐ SITJA INNI ÞRÁTT FYRIR GRÓF BROT GEGN BARNI Sigrún setur spurningarmerki við að refsingin sé að fullu skilorðsbundin.„Ég tek raunar undir o