Rithöfundur og bókavörður gagnrýnir harðlega fyrirætlanir stjórnenda Landsbókasafnsins sem ætla að ráða öryggisverði í stað bókavarða sem eiga að manna þriðju og fjórðu hæð Þjóðarbókhlöðunnar kvöld og helgar í haust. Hún segir að dregið hafi úr allri þjónustu á safninu en stjórnendur segja ástæðuna vera sparnaðarkröfu stjórnvalda.